Metaðsókn á tjaldsvæðið í Grindavík
Metaðsókn var á tjaldsvæðið í Grindavík í sumar, frá miðjum maí og til loka september, bæði hvað varðar gesti og gistinætur.
Aukningin á gistinóttum á milli ára er um 35% og aukning gesta um 34%. Alls komu 9120 gestir á tjaldsvæðið í sumar frá maí til september en gistinætur voru 10.449. Helmings aukning var í septembermánuði.
Þetta kom fram í skýrslu um starfsemi tjaldsvæðisins sumarið 2015 sem lögð var fram á fundi frístunda- og menningarnefndar á dögunum.