Meta möguleika á verðmætabjörgun í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum og Almannavarnir eru að meta möguleika á almennri verðmætabjörgun af heimilum í Grindavík.
Það er ljóst að verkefnið er gríðarstórt. Á því svæði innan bæjarmarka Grindavíkur sem skilgreint hefur verið með mestri áhættu, eru afar stór hluti íbúðarhúsa bæjarbúa.
Mat og undirbúningur snýst fyrst og fremst að því hvernig slík aðgerð færi fram, að leggja mat á þann tímaramma sem slíkt verkefni hefði, og hvaða tíma það tæki. Gert er ráð fyrir að hvert heimili þurfi um 10 manns til að tæma heimilið á 8 klukkustundum.
Einnig er verið að meta þann kost að bjarga eingöngu lausamunum, ekki húsgögnum eða stærri heimilistækjum.
Framkvæmd áætlunar sem þessarar krefst mikils mannafla, enda yfir 1000 heimili í bænum og því mikill ábyrgðarhluti að senda svo stóran hóp fólks sem þarf til, inn á hættusvæðið. Öryggi fólks er alltaf í fyrsta sæti. Í augnablikinu er staðan þannig að ekki er hægt að útiloka að gos hefjist fyrirvara lítið eða fyrirvara laust í þeim hluta bæjarins sem er metinn á mesta hættusvæðinu. Ákvörðun um hvort, og þá hvenær farið verði í slíka aðgerð, byggist á mati vísindamanna á yfirvofandi hættu, og hvort sá tímagluggi sem þarf í verkefnið, sé til staðar.
Fyrir liggur að stór flutningafyrirtæki hafa boðið fram aðstoð sína og aðkoma þeirra væri hluti af slíkri aðgerð.
En það er rétt að ítreka að öryggi fólks er alltaf í fyrirrúmi og það verður ekki sent inn á svæðið í þeim fjölda sem þarf til, nema öryggi þess sé eins tryggt og kostur er.
Ef og þegar eldgos hefst og það kemur upp utan byggðarinnar verður staðan metin á ný, hvort hægt verði að framkvæma slíka verðmætabjörgun.