Mestar líkur á að eldur komi upp á Fagradalssvæðinu
Eftir síðasta sólahring hafa eldsuppkomunæmissvæði breyst, Nú eru fjögur megin svæði. Frá vestri til austurs eru þau Eldvörp, Sýlingafell, Fagradalsfjallssvæðið og Móhálsadalur (milli Djúpavatns og Trölladyngju). Þetta kemur fram í upplýsingagjöf frá Eldfjallafræði og náttúruvárhópi Háskóla Íslands.
„Dreifing á skjálftum gerir það að verkum að eldsuppkomunæmið hefur breyst talsvert frá því gær. Öll eru þessi svæði fjarri íbúðabyggð og mestar líkur á að eldur komi upp á Fagradalssvæðinu taki kerfið upp á því að gjósa. Eins og áður látum við gjósa með 500 m millibili innan gosnæmnisvæðanna og eldgos eru endurtekin 1500 sinnum á hverjum gosstað. Líkanið greinir síðan líklegustu rennslisleiðir hrauns frá þessum gosstöðum. Nú ætlum við að birta hraunrennslis leiðir fyrir hvert svæði fyrir sig. Mjög ólíklegt er að gjósi á öllum svæðum í einu. Enn er mikil óvissa um nákvæma staðsetningu eldstöðva komi til eldgoss,“ segir í færslu hópsins á Facebook.
Hópurinn bendir á að í útreikningum á eldsuppkomunæminu vegur langtíma mat 40%, síðasti sólahringur 40% og síðasta mat 20%. Staðsetning jarðskjálfta fengin frá Veðurstofu Íslands.