Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Mesta gliðnunin á kvikuganginum norður af Grindavík nálægt Hagafelli
Hagafell. Ljósmynd: Ellert Grétarsson
Fimmtudagur 16. nóvember 2023 kl. 18:00

Mesta gliðnunin á kvikuganginum norður af Grindavík nálægt Hagafelli

Skjálftavirknin við kvikuganginn hefur haldist nokkuð stöðug milli daga. Klukkan 17 í dag hafa um 1.300 jarðskjálftar mælst frá miðnætti, sá stærsti 2,6 að stærð og mældist hann við Hagafell laust fyrir 5 í nótt. Flestir skjálftanna voru undir tveimur að stærð og þéttasta virknin er við Hagafell.

Aflögun tengd kvikuganginum mælist áfram þó hún hafi hægt örlítið á sér frá því í gær. Nýjustu líkönin sem reiknuð hafa verið út frá GPS mælingum og gervitunglagögnum benda ennþá til þess að mesta gliðnunin á kvikuganginum sé norður af Grindavík nálægt Hagafelli. Ef kvika nær að brjóta sér leið til yfirborðs, er ennþá líklegast að það verði á því svæði.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Líkur á eldgosi eru ennþá taldar miklar. Áfram er fylgst með merkjum um grynnkandi smáskjálftavirkni og skyndilega gliðnun sem geta verið fyrirboðar þess að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðs. Engin merki eru um slíkt.