Mest lesið á VF 2014: Prestur söng vinsælt lag
- til fermingarbarna í Garði
Fermingarathafnir í kirkjum landsins eru víðast hvar mjög hefðbundnar með sálmasöng, altarisgöngu og slíku. Séra Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur í Útskálakirkju í Garði, brá út af vananum og söng vinsælt lag, Hallelujah, til fermingabarna í vor. Þessi frétt er ein af tíu mest skoðuðu fréttum ársins 2014.
Guðmundur Magnússon hjá Steinboganum kvikmyndagerð útbjó fallegt myndband úr athöfninni sem nýkomið er á Youtube. Það má sjá hér fyrir neðan: