Mest lesið á VF 2014: Ótrúlegt sjónarspil
– þegar Mriya tók á loft frá Keflavíkurflugvelli
	Það var mögnuð upplifun að fylgjast með stærstu flugvél heims, Antonov 225 Mriya taka á loft frá Keflavíkurflugvelli rétt fyrir kl. 02 um nótt í lok júní á síðasta ári. Myndskeið af flugtaki vélarinnar er í einni af mest skoðuðu fréttum ársins 2014 á vef Víkurfrétta, vf.is.
	
	Þessi risastóra þota þurfti að nýta sér lengd Keflavíkurflugvallar, enda ofurþungur farmur um borð sem verið var að fljúga með til Kanada. Ferðalagið hófst í Þýskalandi og vélin átti eftir að stoppa á flugvelli í Goose Bay til að taka eldsneyti til að geta haldið ferðalaginu áfram, sagði í frétt vf.is þann 27. júní 2014.
	
	Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Mriya taka á loft til suðurs. Myndskeiðið er tekið upp í háskerpu og því um að gera að njóta þess að sjá ferlíkið kveðja Keflavíkurflugvöll í HD 1080P myndgæðum.
	
	VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				