Mest lesið á VF 2014: Gunnuhver í ham
– Leirinn þeytist í allar áttir og fréttin 3. mest lesin
Gunnuhver á Reykjanesi komst svo sannarlega í fréttirnar um miðjan september í fyrra. Öflugt leirgos og sprengingar voru í hvernum. Víkurfréttir vöktu fyrstar fjölmiðla athygli á ástandinu og fréttin hlaut mikla athygli. Fréttin af Gunnuhver var sú þriðja mest lesna á vf.is á síðasta ári. Sagt var frá leirgosinu í Gunnuhver á eftirfarandi hátt:
„Eins og Víkurfréttir greindu frá fyrr í dag er aukin virkni við Gunnuhver á Reykjanesi og hefur lögreglan þurft að loka öðrum útsýnispallinum á hverasvæðinu vegna hættuástands sem þar hefur skapast. Leir þeytist marga metra í loft upp úr sjóðandi hver og mikil gufa stígur einnig upp úr hvernum.
Þegar horft er yfir hverasvæðið við Gunnuhver vekur athygli að nær engin gufuvirkni er á svæðinu nema við sjálfan Gunnuhver eins og sjá má í myndskeiði sem Hilmar Bragi, myndatökumaður Víkurfrétta, tók á Reykjanesi nú undir kvöld. Við Gunnuhver sjálfan er hins vegar mikil virkni. Þar má m.a. sjá hvar gamall trépallur er að falla ofan í hverinn.
Lögreglan hefur lokað hluta af hverasvæðinu með gulum lögregluborða og samkvæmt heimildum Víkurfrétta er fylgst vel með svæðinu til að meta framhaldið“.
Meðfylgjandi myndskeið var tekið við Gunnuhver þegar hann lét til sín taka.