Mest lesið 2018: Áreittu börn í strætó og gerðu aðsúg að lögreglu
Samfélagsmiðlar í Reykjanesbæ hafa logað vegna karlmanna sem voru að áreita börn í strætisvagni í Reykjanesbæ, segir í frétt sem birtist í janúar 2018 og er fimmta mest lesna frétt ársins 2018 á vef Víkurfrétta. Samkvæmt þeim upplýsingum sem koma fram í a.m.k. tveimur lokuðum hópum hjá íbúum Reykjanesbæjar hringdu börn úr strætisvagninum í Neyðarlínuna og óskuðu aðstoðar lögreglu eftir að erlendir karlmenn voru að áreita börnin. Eru þeir sagðir hafa bæði kysst og þuklað á börnum í strætisvagninum.