Föstudagur 11. september 2015 kl. 15:43
				  
				Messað í Duushúsum á sunnudaginn
				
				
				
	Í tilefni af 100 ára afmæli Keflavíkurkirkju er boðið upp á sögusýningu í Bíósal Duushúsa um Keflavíkurkirkju. Fyrsta messa vetrarins hjá kirkjunni mun verða þar nk. sunnudag, 13. september, kl. 11:00 en athöfnin er sameiginlegt fjölskyldumessa og sunnudagaskóli.
	
	