Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Meradalaleið opin að gosstöðvunum
Frá gosstöðvunum. Ljósmynd/Jón Steinar Sæmundsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 17. júlí 2023 kl. 13:01

Meradalaleið opin að gosstöðvunum

Lögreglurstjórinn á Suðurnesjum og viðbragðsaðilar funduðu klukkan 13 og á þeim fundi var ákveðið að opna inn á svæðið og er Meradalaleið orðin opin.

Í fréttatilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir: 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Ríkislögreglustjóri lýsir yfir almannavarnastigi í samráði við viðkomandi lögreglustjóra.

Við upphaf eldgossins við fjallið Litla Hrút 10. júlí sl. lýsti ríkislögreglustjóri yfir hættustigi. Var það gert með hliðsjón af alvarleika atburða og þörf á nauðsynlegum viðbúnaði viðbragðsaðila.

Hættustund hefst þegar hættustigi eða neyðarstigi almannavarna er lýst yfir og lýkur þegar hættustigi eða neyðarstigi er aflýst.

Á hættustundu virkjast valdheimildir sem kveðið er á um lögum um almannavarnir. Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að ákveða að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl eða umferð á ákveðnum svæðum svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, þ.m.t. tilteknar fasteignir, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk.  Fyrirmælum þessu er öllum skylt að hlíta.

Meðfylgjandi kort sýnir gönguleiðir og skilgreint hættusvæði að mati Veðurstofu Íslands.

Það er ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum að banna dvöl eða umferð almennings á skilgreindu hættusvæði samkvæmt meðfylgjandi korti.

Slökkvistarf heldur áfram en talið er óhætt að hleypa fólki inn á Meradalaleið. Lögregla, landverðir og björgunarsveitir verða á svæðinu en lögð er áhersla á að fólk fari ekki inn á skilgreint hættusvæði.“

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Norðan og norðvestan 5-8 m/s en bætir heldur í vind síðdegis á morgun. Lægir seint annað kvöld. Gasmengunin berst til suðurs og má því búast við að hennar verði vart á Suðurstrandarvegi og á gönguleiðum að gosstöðvunum.