Bygg
Bygg

Fréttir

Menntun og réttindi lykilatriði
Föstudagur 31. mars 2006 kl. 14:54

Menntun og réttindi lykilatriði

Í því óvissuástandi sem skapast hefur í atvinnulífi Suðurnesja liggur mikið á starfsfólki Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja.

Ketill Jósefsson, forstöðumaður, segir að þriggja manna starfslið miðlunarinnar sé sífellt að svara fyrirspurnum almennings sem er hluti af daglegri starfsemi sem og ráðningarskrifstofa. Svæðisvinnumiðlunin er einnig til samstarfs við þjónustumiðstöðina sem er rekin að Hafnargötu 29 auk þess sem vinnumiðlun veitir þjónustu við starfsviðtöl, gerð ferilskrár, náms- og starfsráðgjöf svo eitthvað sé nefnt.

Ketill sagðist skilja áhyggjur af atvinnuleysi meðal kvenna á Suðurnesjum, sem hefur lengi verið landlægt og segir það liggja að hluta til í eðlli vinnumarkaðarins. „Markaðurinn hér suðurfrá einkennist sérstaklega af þjónustu en minna af framleiðslu en áður. Þess vegna er þetta mikið vaktavinnusvæði og það er afar bagalegt með tilliti til fjölskyldulífs. Óskastaðan er sú að vinnuveitendur skipuleggi vaktir með tilliti til fjölskyldulífs, til dæmis með því að láta vaktir hefjast kl. 8 sem hentar mun betur fyrir marga. IGS fór til dæmis þessa leið í flugeldhúsinu og þeir eiga hrós skilið fyrir það.“

Lykilatriðið í atvinnuöryggi segir Ketill vera nám og annars konar viðleitni við að útvega sér réttindi. „Við á svæðisvinnumiðlun höfum kappkostað að halda mikið af námskeiðum til að efla réttindi á vinnumarkaði og jafnan beint fólki í nám. Nám og réttindi er afar mikilvægt, ekki síst til þar sem það stuðlar að styrkri sjálfsmynd.“

Ketill minntist einnig á vanda þeirra sem komnir eru á ákveðinn aldur, um og yfir sextugt. „Þau eru búin að skila veglegu framlagi til þjóðfélagsins og hafa getu og þol til að halda áfram og hafa enn mikið að gefa. Þetta er mikill mannauður, en vinnuveitendur virðast einhverra hluta vegna ekki kunna að meta reynslu þeirra og hæfni.“

Ketill segir að lokum að hann sé bjartsýnn á að ástandið muni batna, en til þess þurfi að koma til samstarf allra aðila sem að málinu koma. „Ég vona að stjórnvöld og sveitarstjórnir á svæðinu komi sér saman um einhverjar aðgerðir. Það er mikilvægt eins og málið er statt núna að ná svæðinu aftur í okkar hendur en samvinnan er tvímælalaust einn lykillinn að lausn vandans.“
Bílakjarninn
Bílakjarninn