Menntun er ákveðin leið til uppbyggingar á góðu samfélagi
- segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, í viðtali við Víkurfréttir
Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka. Námið í Keili skiptist í fjögur sérhæfð meginsvið, en innan hvers sviðs er fjölbreytt námsframboð. Sviðin fjögur eru Háskólabrú, sem miðar að því að undirbúa nemendur fyrir háskólanám, Flugakademía, sem býður upp á ýmis konar flugtengt nám, Íþróttaakademía, sem veitir ÍAK þjálfararéttindi og leiðsögunám í ævintýraferðamennsku, og tæknifræði, sem skiptist í iðntæknifræði og mekatróník hátæknifræði.
Keilir var stofnaður á þessum degi, 4. maí, árið 2007 og hefur aðsetur á Ásbrú í Reykjanesbæ á fyrrum varnarsvæði bandaríska hersins. Frá upphafi hefur skólinn einsett sér að byggja upp námsmannasamfélag þar sem boðið er upp á vandað nám með áherslu á nýstárlega kennsluhætti og fyrsta flokks aðstöðu. Keilir er hlutafélag og eru meðal eigenda Háskóli Íslands, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, rannsóknarstofnanir, orku- og fjármálafyrirtæki, sveitarfélög, almenningssamtök, flugfélag og verkalýðsfélög.
Hjá Keili er mikið lagt upp úr nútímalegum og fjölbreyttum kennsluháttum, bæði í fjarnámi og staðnámi. Einnig að nemendum sé skapað traust og gott námsumhverfi.
Skólamaðurinn Hjálmar Árnason fer fyrir Keili. Hann hefur starfað hjá Keili frá upphafi, reyndar degi tvö, en Runólfur Ágústsson, sem leiddi Keili fyrstu skrefin réði Hjálmar til skólans. Þegar Runólfur hætti og snéri sér að öðrum verkefnum þá tók Hjálmar við keflinu. Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, settist niður með Hjálmari í skólahúsi Keilis á Ásbrú. Fyrsta spurningin var ekki lítil. Hvað hefur gerst á þessum tíu árum frá stofnun Keilis.
„Þegar stórt er spurt. Þessi 10 ár hafa verið alveg ótrúlega fljót að líða. Okkur finnst við bara vera nýbyrjuð en samt hefur alveg ótrúlega margt gerst, finnst okkur. Sem að ef til vill sést af því að Keilir er svona að velta um það bil einum milljarði og hér koma svona um 150 hausar að vinnunni með einum eða öðrum hætti, auðvitað ekkert allir í fullri vinnu. Bara erlendir flugnemendur okkar, sem koma hingað og dvelja í svona tvö ár, þeir eru að færa inn í samfélagið hér á Suðurnesjum kannski svona hálfan milljarð á ári. Ekkert allt til okkar, þeir eru að leigja húsnæði og bíla, þeir borða, þeir djamma og svo framvegis. Það sem kannski skiptir mestu máli, það eru tæplega 3000 nemendur sem við erum búin að útskrifa á þessum 10 árum og það er svona það sem við erum virkilega ánægð með og eiginlega bara stolt af. Börnin okkar sem við erum virkilega stolt af og við reynum að fylgjast með þeim og erum afar glöð að sjá hvernig ungunum hefur vegnað þegar þeir fljúga úr Keilishreiðrinu.“
Þetta er svona bland í poka ef fæ að nota það orð yfir skólasamfélagið hjá ykkur. Þið eruð að sinna mjög mörgu.
„Já og til þess var nú leikurinn gerður. Annars vegar að hækka menntastigið á Suðurnesjum, við munum hvernig ástandið var hér fyrir 10 árum, þegar Kaninn fór. En líka til að efla tengslin við atvinnulífið og það er svona uppleggið og við erum ennþá á vaktinni að leita að nýjum tækifærum. Við erum öðruvísi heldur en líklega allir aðrir skólar, við erum hvorki né. Við erum bæði framhaldsskóli en við erum líka með námsbrautir hér á háskólastigi. Hér er hægt að læra til BS gráðu í tæknifræði og atvinnulífið æpir á tæknimenntað fólk. Það er hægt að nefna hér frábæra aðstöðu, frábæra kennara og þau verkefni sem hafa komið frá tæknifræðinemendum okkar. Þau eru náttúrulega alveg stórkostleg. Þau hafa leitt til stofnana fyrirtækja. Við sjáum bara Fidu, með GeoSilica og það eru margar Fidurnar, getum við sagt. Nú, við höfum lagt upp með það módel að við leitum eftir samstarfi við þá sem eru bestir á hverju sviði. Ævintýraleiðsögnin, þar keyrum við á leyfi frá Thompson River University í Kanada, sem er fremsti háskóli heima á því sviði. Flugvirkjanámið, það byggir á leyfi frá AST, sem er elsti flugvirkjaskóli í Evrópu og þannig má áfram telja. Nýjasta afurðin er líklega fótaaðgerðaskólinn, sá eini á landinu. Honum var lokað og við bara keyptum hann og fluttum hann hingað. Núna er hann kominn af stað. Þannig höfum við stöðugt verið og erum á verði yfir því hvar tækifærin eru til þess að mennta fólk.“


Menntun er ákveðin leið til uppbyggingar á góðu samfélagi
En hefur Háskólabrúin verið stærsta verkefnið?
„Við byrjuðum með hana og af þessum 3000 nemendum okkar þá er um það bil helmingurinn sem er útskrifaður af Háskólabrú, um 1500 nemendur sem eru útskrifaðir núna af Háskólabrú og um 85% þeirra fer síðan í frekara nám. Það sést kannski á tölum hvaða áhrif það hefur haft. Okkur var upplagt í byrjun að reyna að hækka menntastigið á Suðurnesjum. Í byrjun árs 2007 voru 12,9% 25 ára og eldri íbúar Reykjanesbæjar með háskólamenntun. Landsmeðaltalið var þá 28%, þannig við vorum langt undir því. Í dag, 10 árum síðar, eru 28% íbúa Reykjanesbæjar, 25 ára og eldri með háskólamenntun. Auðvitað eru fleiri en við sem að því koma en ég er alveg viss um það að skólasamfélagið hér á Ásbrú á sinn þátt í því. Það er bara mjög ánægjulegt því við trúum því að menntun sé ákveðin leið til uppbyggingar á góðu samfélagi.“
Þessi brú, hverjir eru að sækja hana? Er það ungt fólk eða er þetta jafnvel stálpað fólk sem hrökklaðist úr námi og er að fara í gang aftur?
„Meðalaldurinn hefur verið svona nálægt 30 árum. Elsti nemandinn er tæplega sjötugur. Þetta er fólk sem hefur, af ýmsum ástæðum, hætt í framhaldsskóla. Ekki fundið sig, farið í vinnu, stofnað fjölskyldu eða hvað sem er. En hefur alið með sér þennan draum að geta farið í frekara nám. Þau koma hingað og þurfa að vera búin með eitthvað í framhaldsskóla en klára á einu ári ef þau eru í fullu námi hérna.“
Komast þá inn í háskólanám?
„Eftir það komast þau inn í háskólanám og hefur gengið þar mjög vel. Við höfum fylgst með þeim, meira að segja fyrstu nemendur okkar af háskólabrúnni eru sumir komnir með doktorsgráður. Sumir þeirra eru komnir í starfsliðið hjá okkur og plumma sig vel. Útskrift er alltaf mjög skemmtileg og ég hef náttúrulega verið viðstaddur margar útskriftir sem gamall skólameistari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en tilfinningarnar við útskrift af háskólabrú eru sterkari en eiginlega orð fá lýst. Það er svo mikil gleði, það er svo mikil saga á bak við hvern, það eru svo miklir sigrar og það er nú það sem gerir þetta starf ótrúlega skemmtilegt. Þetta er svona að vinna svona með fólki, gefa fólki tækifæri og gleðjast með fólki.“


Flugið gríðarlega stór partur af okkar atvinnulífi
Hér er fólk að læra til atvinnuflugs?
„Við lögðum upp með það að flug, sem er orðinn gríðarlega stór partur af okkar atvinnulífi, en hefur ekki verið hluti af skólakerfinu, jafn fáránlegt og það er, og það er kannski ein ástæðan fyrir því að það eru svo margir sem gefast upp í framhaldsskóla. Hann er svo þröngur og miðar bara svona við lækni, lögfræðing og prest í raun og veru. Við vildum búa til svona eina regnhlíf, flugakademíu, yfir flugið og höfum boðið hér upp á nám, bara allt sem snertir flugið. Flugvirkjar, flugfreyjur, flugrekstrarfræði, flugmenn og svo framvegis. Við byrjuðum smátt. Við eigum núna tíu flugvélar. Við eigum þegar einn flughermi og flughermir númer tvö er á leiðinni til landsins og stærri plön í viðræðum við ónefnd flugfélög eru á döfinni. Þannig að Flugakademía Keilis er að láta vel til sín taka. Hún er til dæmis næst stærsti flugskóli í Danmörku og það byggir á því að það er svo mikið af dönskum og sænskum flugnemendum sem koma. Markaðsstjórar okkar þar eru fyrrverandi nemendur okkar. Þeir eru núna flugmenn, annar hjá RyanAir og hinn hjá SAS. Þeir eru að markaðssetja okkur á Norðurlöndunum og með svona líka flottum árangri. En við erum alltaf að leita að nýjum tækifærum. Við erum komin með leyfi fyrir stúdentsbrautum og við trúum því að við munum fara af stað, hugsanlega næsta haust, með stúdentsbrautir fyrir 16 ára og eldri. En öðruvísi stúdentsbrautir heldur en allir aðrir hafa verið að gera. Það sem við erum að leggja áherslu á, náttúrulega við erum að nota okkur vendinámið, við höfum verið leiðandi í að innleiða hér nýja kennsluhætti, svokallað flipp eða vendinám. Við höfum haldið hér tvær alþjóðlegar ráðstefnur. Yfir 1000 íslenskir kennarar eru búnir að koma til okkar og svo framvegis og við ætlum að nýta okkur þá reynslu. Við ætlum bara að byrja klukkan níu á morgnanna en valið á þessum brautum, við erum að svara kalli atvinnulífsins eftir fólki í leikjagerðarbransanum, eins og CCP og svo framvegis. Á þessum stúdentsbrautum erum við að vinna náið með CCP, forstjóri CCP verður í fagráði okkar á þessari nýju stúdentsbraut og samtök leikjagerðarfyrirtækja, þau styðja okkur „full force“ í þessu. Við höldum að þetta muni höfða mjög til ungs fólks. Við ætlum ekki að kenna sex, sjö greinar á dag, heldur eina, tvær, taka þetta í lotum og vera sem sagt allt öðruvísi. Reyna að ýta undir skapandi hugsun og svara kalli atvinnulífs og unga fólksins. Það er bara það sem er hlutverk Keilis. Við erum að þjóna líka fyrirtækjunum. Við erum að hjálpa stærri fyrirtækjum á landsvísu með endurmenntunarnámskeið og byggjum það á þessari fjarnámskennslu sem við höfum verið með og svo framvegis.“


Gamla fyrirlestrakerfið er dautt
Útskýrðu fyrir mér í stuttu máli vendinámið.
„Vendinámið er bara einfaldlega þannig að í stað þess að kennarinn mali og sé sá virki í tímanum og svæfi nemendur, sem að gerist, maður þekkir það bara á eigin skinni, ég er farinn að dotta eftir tíu mínútur, þá tekur kennarinn efnið upp og heimavinna nemandans er að hlusta á kennarann, hvort sem það er Power Point eða hvernig sem það er. Nemandinn getur gert það eins oft og hann vill. Hann getur endurtekið þegar hann vill, hvort sem það er heima hjá sér, í ræktinni eða hvar sem er. Svo koma nemendur í skólann, ekki til að hlusta á kennarann, heldur fara þeir að vinna að verkefnum, gjarnan í hóp, vegna þess að það að vera að vinna í verkefni, útskýra það fyrir öðrum, stúdera það, þá ertu að fara dýpra inn í verkefnið, heldur en að sitja bara passívur hlustandi. Nemendur okkar í háskólabrúnni segja gjarnan: „Ég vildi að svona hefði verið þegar ég var í skóla.“ Þetta er stutt með ýmsum rannsóknum og kannski það sem skiptir mestu máli, þar sem þetta hefur verið lengst reynt í Bandaríkjunum, hjá John Bergman, sem er sérlegur vinur okkar, að þeir skólar sem hafa tekið þetta upp þar, þar hafa nemendur skilað hærri meðaleinkunn, það er meiri ánægja meðal nemenda, foreldra, kennara og í rauninni allra. Ég held að þetta sé svar skólakerfisins við upplýsingasamfélaginu. En kerfið er ennþá fast í iðnaðarsamfélaginu, þar sem allir eiga að taka sama prófið, allir eiga að læra það sama á sama tíma. Þess vegna leiðist krökkum í skóla. Það hafa verið gerðar kannanir innan framhaldsskóla hér og krökkum leiðist. Í háskólanum, þar var gerð könnun meðal stúdenta: „Hvernig finnst ykkur að vera í tímum hjá okkur?“ Þeir eru leiðinlegir. Við erum að reyna að svara þessu og virkja nemendur meira. Það er nefnilega hægt að treysta fólki svo miklu meira heldur en kerfið gerir.“
Er þetta ekkert að koma almennt meira í skólakerfinu öllu?
„Kerfið er svo samansúrrað. Allir kjarasamningar og flestar skólabyggingar miða við þetta gamaldags dót. Við tókum hér við 40 eða 50 ára gamalli byggingu og okkar markmið er í rauninni að losna við alla svona innveggi og vera með lærdómsstöðvar þar sem nemendur geta komið saman um verkefni og kennarinn er svona til að veita aðstoð ef á þarf að halda. Því miður þá er skólakerfið ótrúlega gamaldags. Ég finn að kennarar eru að leita, þeir finna að gamla fyrirlestrakerfið, það er dautt og þeir eru að leita að nýju formi. En kerfið, einhvern veginn, heldur þeim svo í þessu. Grunnskólarnir eru opnari og því ofar sem er farið í skólastigum, þeim íhaldssamara verður það, það er svona mitt mat.“
Snjalltæki, eruð þið að nota þau?
„Já, öll. Einn af okkar ágætu kennurum fór út í Sporthús, til að fara í líkamsræktina. Þar var einn stór og mikill rumur, nemandi okkar, með svona heyrnartól og hann var í róðravélinni. Kennarinn heilsar honum „hvað er verið að hlusta á, eitthvað rokk?“, „Nei, það er Salka Valka,“ og svo hélt hann áfram að róa. Það er þannig sem nemendur geta tekið með sér þegar þeim hentar. Það er að þeir séu að taka við upplýsingunum, en svo koma þeir hingað í skólann til þess að vinna úr þeim sameiginlega og með aðstoð kennarans. Sem er miklu skemmtilegra heldur en að sitja með slefuna niður, sofandi yfir einhverjum malandi kennara.“
Hvað með samstaf í skólasamfélaginu á Suðurnesjunum? Eruð þið til dæmis í einhverju samstarfi við þinn gamla skóla, Fjölbrautaskóla Suðurnesja?
„Já, já, auðvitað erum við með ágætt samband á milli og sömuleiðis með Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. MSS er til dæmis með Menntastoðir, sem voru settar beinlínis upp fyrir þá sem ekki fylltu skilyrði um háskólabrúnna hér. Þannig að Miðstöð símenntunar setti upp menntastoðir og þau sem klára menntastoðir geta svo komið í háskólabrúnna. Hins vegar mætti þetta samstarf, að mínu mati vera miklu, miklu meira. Við erum ekki nema rúmlega 20.000 manna samfélag. Af hverju erum við að dreifa okkur á svona marga staði? Ég hef lagt til að þetta yrði allt sameinað undir eina yfirstjórn, Reykjanes Akademíuna, svo er bara skoðað ískalt, hvar er best að koma náminu fyrir? Það sem er best í Fjölbraut fer þangað, það sem er best hjá Miðstöð símenntunar fer þangað, með hagsmuni svæðisins í huga en ekki þessi músarholusjónarmið sem við gjarnan viljum láta vera ráðandi. Það fékk daufar undirtektir þegar við kynntum hugmyndina.“
Hvað þarf til þess að breyta því viðhorfi?
„Þetta er svona svipað og með sameiningu sveitarfélaga. Að menn segja gjarnan: „Þetta er rosalega sniðug hugmynd, hún á bara ekki við hjá mér.“ Það er gamla sagan. Menn eru alltaf að passa sitt. En ég tel það skyldu okkar að horfa á hagsmuni samfélagsins í heild og hvernig fræðslu sé best borgið fyrir samfélagið hér á Suðurnesjum. Það tel ég að við gerum með einni svona yfirstjórn, þar sem við samnýtum krafta og sækjum fram af miklu meiri móði heldur en við höfum í raun verið að gera.“


Framtíðin er svo ótrúlega björt
Þegar þú talar um þessa miklu aukningu í menntunarstigi íbúa Reykjanesbæjar, finnur þú, þegar þú horfir til baka þessi 10 ár, sérðu hvaða áhrif þetta hefur haft á atvinnulífið á Suðurnesjum? Það var oft talað um það að í gamla daga, þá voru ekki nógu mörg atvinnutækifæri fyrir þá sem fóru og náðu sér í háskólapróf. Það var ekki eins algengt í gamla daga. Háskólapróf er orðið jafn algengt og stúdentspróf var fyrir 20, 30 árum síðan. Hvaða áhrif sérðu þetta hafa haft á samfélagið á Suðurnesjum núna upp á atvinnutækifæri? Fær þetta fólk vinnu hérna?
„Mér sýnist að flestir sem hafa farið hér í gegnum háskólabrúna hafa haldið áfram í frekara nám. Þeir sem koma úr flugakademíunni, þeir eru rifnir út. Það vantar flugmenn úti um allan heim. Það vantar flugvirkja úti um allan heim. Þannig að framtíðin þar er svo ótrúlega björt. Nemendur okkar í tæknifræði, þeir vinna lokaverkefni með þeim sérfræðingum sem hér eru og mörg af þessum lokaverkefnum verða til þess að það eru stofnuð fyrirtæki. Ég nefndi hér áður hana Fidu og Burkna með Geo Silica. Þau eru núna komin í fulla framleiðslu og eru að gera stóra samninga, fara í útflutning og svo framvegis og eru að ráða til sín fólk. Það eru fleiri slíkir sprotar, getum við sagt, sem hafa sprottið hérna upp og ég leyfi mér að fullyrða það að hvergi á landinu er aðstaða jafn góð. Sækja sér menntunina, lokaverkefnið eins og í tæknifræðinni og hafa svo aðstöðu, eins og úti í Eldey, eða í Eldvörpum eða í öllu þessu húsnæði sem er ekki á Ásbrú, til þess að fara af stað með ný sprotafyrirtæki. Þau eru að koma hér upp. Það er bara svo einfalt. Sá sem hefur lokið einhverri menntun, skiptir í rauninni ekki hver hún er, sá hefur sett sér markmið, náð þeim markmiðum og er þá kominn eiginlega bara með lykil að því að bjarga sér í lífinu. Hvort sem það er prestur, flugvirki, fótaaðgerðafræðingur eða tæknifræðingur, en það er þetta vopn sem heitir menntun, prófskírteini, sem tákn um það að þú getir tileinkað þér einhverja þekkingu og kannt að beita henni. Út á það gengur menntun, að gera fólk hamingjusamt og sjálfbjarga.“
Svona örstutt með framtíðina í skólamálum, hvernig sérðu hana fyrir þér á Suðurnesjum á næstunni? Ég veit þú ert búinn að tala um að þú viljir sjá sameiningu, en sérðu einhver önnur tækifæri fyrir svæðið í skólamálum?
„Já, já, ekki nokkur vafi. You ain´t seen nothing yet, sko. Það eru svo gífurlega mörg tækifæri og við erum með marga bolta á lofti hér sem við erum að skoða. Aðal vandinn er hins vegar miðstýring í ráðuneytinu. Það eru svo þröng sjónarmið þar. Þar sem bara eru tekin mið af einhverjum Excel skjölum af því sem að var en ekki því sem verður. Það tel ég vera í rauninni aðal ógnina við skólastarf á Íslandi. Það er ein ástæðan fyrir því að skólum miðar svo hægt að tengjast atvinnulífinu. Það eru alltaf einhverjir svona kraftar í miðstýrðum ráðuneytum sem stoppa þetta. Það er hættulegt fyrir okkar samfélag. Ég sé að, í okkar nánustu framtíð, þá verðum við með auðvitað fjölbreytileika í námsbrautum. En við munum líka fá mikið af erlendum nemendum. Það mun eiga eftir að aukast. Við erum til dæmis að skoða með HS Orku, spennandi um dæmi þar sem við erum að nýta þá einstöku þekkingu sem þar hefur skapast til þess að fara í útflutning á því. Við erum þegar byrjuð að fá erlendar umsóknir í námið okkar í ævintýraleiðsögn. Þar er það gott fagfólk og íslensk náttúra sem kallar á, því að skólastofan þar er ekki nema að litlum hluta hér inni. Hún er annars úti í náttúrunni. Við erum ekkert farin að auglýsa ævintýraleiðsögnina í útlöndum, samt er fólk farið að koma hérna inn. Flugvirkjanámið, við erum þegar farin að fá inn fyrirspurnir frá erlendum flugfélögum hvort við gætum hugsað okkur að taka við, því það er svo gífurlegur skortur á flugvirkjanemendum úti um allan heim og flugvirkjaskólar heimsins ná ekki að framleiða upp í þá þörf. Aðstaðan hér á Ásbrú er náttúrulega svo einstök, ef við nýtum hana með réttum hætti.“
Þið voruð að þjálfa fólk til þess að vera með einkaþjálfun í líkamsrækt.
„Já, þjálfaranámið og styrktarþjálfaranámið. Næstu skref þar eru að, við erum þegar að stíga fyrstu skrefin í því, að vera með það á netinu, og það eru erlendir nemendur sem eru að taka það á netinu eftir algjörlega nýrri tækni þar sem þeir geta meira að segja stundað verklega þáttinn heima hjá sér þökk sé nútímatæki. Við höfum sótt þar, eins og víða annars staðar, erlenda kennara sem eru hoknir af reynslu og hafa verið að þjálfa jafnvel ólympíu landsliðið í Bandaríkjunum, Noregi og svo framvegis. Við erum að sækja þekkinguna til þeirra og gera hana að útflutningsvöru. Varðandi framtíðina held ég einmitt að það að byrja í skóla og enda í skóla, það verður ekkert svoleiðis. Samfélagið breytist svo hratt og sá sem ætlar sér að taka þátt í því og vera samkeppnisfær, verður stöðugt að vera að mennta sig og þar held ég að góð fjarnámstækni muni ráða úrslitum og ég held að við séum nokkuð leiðandi og framarlega á því sviði. Þar liggur held ég gífurlega mikil framtíð í bara allri fræðslu.“


Þið fenguð alveg ágæta 10 ára afmælisgjöf um daginn þegar þið fenguð Menntasprotann.
„Já, sem var alveg gífurlega ánægjulegt og hérna innanhúss fór mikil gleðialda um. Á sama tíma og við segjum að kerfið sé voða íhaldssamt af því að við erum bæði á háskólastigi og framhaldsskólastigi og við erum hvorki né, þá pössum við illa inn í Excel skjölin. Að fá síðan frá atvinnulífinu viðurkenningu, það náttúrulega bara segir okkur að við höfum verið að gera eitthvað rétt og verður okkur bara hvatning til frekari dáða og við hlökkum til næstu 10 ára.
Samtök atvinnulífsins veittu þessi verðlaun og glöddu okkur alveg óstjórnlega með þessu.“