Fréttir

Menntaskóli á Ásbrú í mótun
Þorsteinn Surmeli og Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og, íslenskukennarar við Háskólabrú Keilis, munu hafa umsjón með námsbrautinni.
Föstudagur 5. febrúar 2016 kl. 09:51

Menntaskóli á Ásbrú í mótun

- Bjóða upp á 3ja ára stúdentsnám frá næsta hausti

Keilir á Ásbrú stefnir á að bjóða upp á þriggja ára stúdentsnám frá og með næsta hausti. Skólinn hefur fengið tilskilin leyfi frá menntamálaráðuneytinu og er nú vinna hafin við að koma skólanum á fót en hann mun bera nafnið Menntaskólinn á Ásbrú (MÁS). Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og Þorsteinn Surmeli, íslenskukennarar við Háskólabrú Keilis, munu hafa umsjón með námsbrautinni sem þau segja að muni leggja áherslu á nýjustu aðferðir í námi og kennslu og undirbúa nemendur fyrir störf framtíðarinnar.

MÁS verður að mörgu leyti frábrugðinn öðrum framhaldsskólum. Skólinn mun leggja áherslu á vendinám (e. flipped classroom) sem hefur verið stór hluti af starfi Keilis á undanförnum árum.

Í skólanum verða hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur munu nemendur stunda sína vinnu í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim. 

Skóladagurinn í MÁS mun ekki hefjast fyrr en klukkan 9 á morgnana enda vita Íslendingar vel hvaða áhrif myrkrið getur haft á sálarlíf okkar. Dagleg hreyfing verður hluti af skólastarfinu enda mun MÁS leggja áherslu á bæði andlega og líkamlega vellíðan nemenda og starfsfólks.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024