Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fimmtudagur 4. desember 2003 kl. 14:41

Mennirnir sem handteknir voru ekki tengdir hnefaleikafélagi Reykjavíkur

Hnefaleikafélag Reykjavíkur hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta í morgun að tveir aðilar hafi á þriðjudag verið stöðvaðir með 400 grömm af kókaíni í Leifsstöð, en mennirnir voru klæddir í íþróttabúninga tengdum hnefaleikum og á búningunum var m.a. íslenski fáninn. Í tilkynningu frá félaginu segir að mennirnir tveir sem handteknir voru séu ekki meðlimir í Hnefaleikafélagi Reykjavíkur.

„Í ljósi nýafstaðinna atburða tengdum hnefaleikaíþróttinni hefur stjórn Hnefaleikafélags Reykjavíkur ákveðið að koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri.

Mennirnir tveir sem handteknir voru á Keflavíkurflugvelli í morgun í tengslum við stórfellt fíkniefnasmygl eru ekki meðlimir HR.  Í ágústmánuði þessa árs tóku nýir rekstraraðilar við rekstri félagsins og var gerður samningur við fyrrverandi rekstraraðila félagsins þess eðlis að þeir létu íþróttina og allt henni tengt óafskipt næstu 5 árin.  Það eru fyrrum rekstraraðilar HR sem um ræðir í þeirri frétt sem birt var í morgun.

Því kemur það eins og köld vatnsgusa þegar fregnir þess eðlis að aðilar tengdir hnefaleikaíþróttinni hafi verið handteknir vegna fíkniefnasmygls, ofan á allt annað sem á undan hefur gengið þessa vikuna.

Við viljum gera það skýrt að HR tengist þessum aðilum ekki, þau tengsl voru rofin í ágústmánuði er BAG ehf. yfirtók rekstur HR og viljum að það sé skýrt að nýir rekstraraðilar, sem eiga ekkert skylt við þann verknað sem framinn hefur verið, stýra nú félaginu í heilbrigðu samstarfi við ÍSÍ.

Í fréttaflutningi tengdu málinu hefur það verið tekið skýrt fram að þessir menn starfi sem hnefaleikaþjálfarar, hafi verið klæddir merktum klæðnaði sem tengdist hnefaleikaíþróttinni og hafi haft í fórum sínum hnefaleikabúnað ætlaðan til sölu.  Slíkt brýtur í bága við samning sem þeir undirrituðu við Boxing ehf. í ágústmánuði sl. auk þess sem við fordæmum það að íþróttin sé nýtt sem skjól til að smygla eiturlyfjum til landsins.

Mál þetta er stórt áfall fyrir alla þá sem hafa unnið að uppbyggingu
íþróttarinnar um árabil.  Það að verknaður aðila sem úthýst hefur verið úr íþróttinni geti sett svartan blett yfir allt það jákvæða starf sem aðrir hafa unnið í sjálfboðavinnu til að vinna að veg og hag íþróttarinnar er óásættanlegt og viljum við koma í veg fyrir að slíkur misskilningur myndist.“

Fyrir hönd stjórnar Hnefaleikafélags Reykjavíkur,

Snorri Barón Jónsson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024