HSS
HSS

Fréttir

Menningarverðlaun Reykjanesbæjar afhent í Duushúsum í dag
Þriðjudagur 23. nóvember 2004 kl. 13:19

Menningarverðlaun Reykjanesbæjar afhent í Duushúsum í dag

Menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2004 verða afhent við formlega athöfn í Duushúsum í dag klukkan 17.30. 
Að venju verða veitt tvenn verðlaun, annars vegar til hóps eða einstaklings sem unnið hefur vel að menningarmálum í bæjarfélaginu og hins vegar til fyrirtækis sem stutt hefur við menningarlíf  bæjarins með fjárstyrk eða með öðrum hætti.
Verðlaunahafar fá afhentan grip, Súluna, eftir Karl Ólsen ásamt viðurkenningarskjali.

Við sama tækifæri mun formaður menningar-, íþrótta- og tómstundarráðs afhenda menningarstyrki ársins og undirritaður verður samningur milli Byggðasafns Reykjanesbæjar og Iðnaðarmannafélags Suðurnesja um iðnminjasýningu og varðveislu muna og gagna sem tengjast félaginu á liðnum árum.

Athöfnin fer fram í sal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Allir velunnararar menningarlífs í Reykjanesbæ velkomnir

Bílakjarninn
Bílakjarninn