Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Menningarráð auglýsir eftir styrkumsóknum
Föstudagur 25. september 2009 kl. 08:21

Menningarráð auglýsir eftir styrkumsóknum


Menningarráð Suðurnesja hefur auglýst eftir styrkumsóknum vegna menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurnesjum og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál. Umsóknarfrestur er til 15. október 2009.


Upplýsingar um styrkumsóknir verða veittar á skrifstofum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum og á skrifstofu SSS Iðavöllum 12b. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á vefsíðum SSS http://menning.sss.is og á vefsíðum sveitarfélaganna og þar er að finna umsóknarform sem hægt er að prenta út

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona


Þau verkefni sem koma til greina eru:?
1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.?
2. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.?
3. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.?
4. Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25