Mengun frá gosinu gæti borist yfir Grindavík
Það er austlæg átt á Reykjanesskaganum í dag svo mengun frá gosinu í Fagradalsfjalli gæti borist yfir Grindavík.
Snýst í suðvestlæga átt í kvöld svo gas gæti mælst á Höfuðborgarsvæðinu fram á morgundaginn. Norðlæg eða norðvestlæg átt á morgun svo gas ætti ekki að berast mikið yfir byggð, segir í gasspá Veðurstofu Íslands.
Myndin með fréttinni var tekin núna á tíunda tímanum og sýnir vel hvernig mengunin frá gosstöðvunum stígur til himins. VF-mynd: Hilmar Bragi