Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum í SA og SI
Samningar um aðild Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum (MBS) að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins hafa verið undirritaðir. Svana Helen Björnsdóttir, formaður SI, Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA og Grétar I. Guðlaugsson, formaður MBS skrifuðu undir samningana.
Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum var stofnað 3. desember árið 1971. Félagsmenn eru 45 talsins og koma úr öllum greinum byggingariðnaðarins, segir í fréttatilkynningu.
Samtökin fagna þessum góða liðsauka og vænta mikils af auknum styrk og samtakamætti félaga í byggingariðnaði, segir í tilkynningunni.
„Með aðild MBS er lagður grunnur að enn sterkari samtökum sem gæta hagsmuna íslensks byggingariðnaðar enda starfa nú nær öll samtök atvinnurekenda í byggingariðnaði sameinuð undir merkjum Samtaka iðnaðarins.“