Meirihlutinn samþykkir úrsögn úr Kölku
Tillaga meirihlutans í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um úrsögn úr sameignarfélaginu Sorpeyðarstöð Suðurnesja var samþykkt með atkvæðum Sjálfstæðismanna á bæjarstjórnarfundi í gær. A-listinn sat hjá við atkvæðagreiðsluna en tillaga hans um að fresta úrsögninni var felld af meirihlutanum.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja er sameignarfélaga sveitarfélaga á Suðurnesjum. Rekstur félagsins hefur staðið höllum fæti en tap þess nam tæpum 597 milljónum króna á síðasta reikningsári aðallega vegna fjármagnsliða. Eigið fé var neikvætt um 497 milljónir króna, samkvæmt rekstrarreikningi.
Samkvæmt tillögu Sjálfstæðismanna mun Reykjanesbær ganga úr félaginu með sex mánaða fyrirvara en þeir telja að stjórn Kölku hafa gengið gegn þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið á aðalfundum Kölku og af sveitarstjórnum á Suðurnesjum. Forsenda þess að Reykjanesbær lagði um 130 milljónir króna fram til reksturs stöðvarinnar á síðasta ári hafi brostið en framlagið var háð því skilyrði að búið væri að ná samstöðu um rekstrarform til framtíðar.
Í tilögu A-listans var lagt til að tillögu Sjálfstæðismanna yrði frestað eða hún dregin til baka enda hafi umræðan og málflutningur sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum gefið tilefni til þess að leita lausna í samvinnu við hin sveitarfélögin.