Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Meirihluti íbúa Reykjanesbæjar ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar
Íbúar í Reykjanesbæ eru óánægðastir með umhverfið í nágrenni heimilis síns.
Laugardagur 23. janúar 2016 kl. 06:00

Meirihluti íbúa Reykjanesbæjar ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar

- Samkvæmt könnun Gallup

Yfir 86 prósent íbúa Reykjanesbæjar eru ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar í bæjarfélaginu, samkvæmt nýrri könnuð Gallup á þjónustu sveitarfélaga 2015. Þetta kemur fram á vef Reykjanesbæjar.

Meðaltalsniðurstaða svara um viðhorf til aðstöðu til íþróttaiðkunar er 4,2 í Reykjanesbæ en 4,0 á landsvísu af fimm mögulegum. Reykjanesbær skorar einnig hærra í ánægju með þjónustu grunnskóla og leikskóla, þjónustu við fatlaða og eldri borgara og með skipulagsmál almennt. Munar þar einu til tveimur stigum miðað við landsmeðaltal. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þjónusta Reykjanesbæjar er yfir landsmeðaltali í 6 þjónustuþáttum af 12 sem spurt var um í könnuninni. Óánægðastir eru íbúar með umhverfið í nágrenni heimilisins. Hvað hina þjónustuþættina sex varðar gefur niðurstaða könnunarinnar bæjaryfirvöldum tækifæri til að gera enn betur, segir í frétt á vef Reykjanesbæjar. „Auk umhverfisins er það þjónusta við sorphirðu, menningarmál, þjónusta við barnafjölskyldur, bæjarfélagið til búsetu og þjónusta bæjarfélagsins á heildina litið,“ segir þar.