Fimmtudagur 20. desember 2001 kl. 00:58
Meirihluti hlynntur sameiginlegu íþróttasvæði ofan Reykjaneshallar
Nú stendur yfir könnun á vef Reykjanesbæjar um það hvort fólk sé hlynnt sameiginlegu íþróttasvæði ofan Reykjaneshallar í stað þeirra sem fyrir eru.Á miðnætti höfðu 137 tekið þátt í könnuninni og höfðu 53% svarað spurningunni játandi en 47% neitandi.