Meirihluti bæjarbúa farinn frá Grindavík
Meirihluti bæjarbúa er farinn frá Grindavík. Straumur fólks hefur verið bæði Suðurstrandarveginn til austurs og um Nesveginn fyrir Reykjanes til vesturs.
Í fréttum er sagt að allt að 80% bæjarbúa hafi yfirgefið bæinn. Fjölmennt lögreglulið er í Grindavík sem vaktar bæjarfélagið þar sem fáir eru á ferli núna.