Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Meirihlutasamstarf D-lista og B-lista í Suðurnesjabæ
Á meðfylgjandi mynd má sjá Einar Jón Pálsson og Anton Guðmundsson handsala samkomulagið. Á myndinni eru einnig Magnús Sigfús Magnússon og Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir af D lista og Úrsúla María Guðjónsdóttir af B-lista.
Mánudagur 23. maí 2022 kl. 18:14

Meirihlutasamstarf D-lista og B-lista í Suðurnesjabæ

D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra og B-listi Framsóknarflokksins hafa komist að samkomulagi um samstarf á komandi kjörtímabili 2022-2026 í Suðurnesjabæ. Samkomulag þess efnis var undirritað sunnudaginn 22. maí af bæjarfulltrúum beggja framboða.

Samstarfið mun byggja á stefnuskrám framboðanna. Lögð verður áhersla á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa, starfsmanna sveitarfélagsins og bæjarbúa.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Einar Jón Pálsson, oddviti D-listans, verður forseti bæjarstjórnar og Anton Guðmundsson, oddviti B-listans, verður formaður bæjarráðs.

Stefnt er að því að boða til fyrsta fundar nýrrar bæjarstjórnar í næstu viku.