Fimmtudagur 10. desember 1998 kl. 23:48
MEIRI HRAÐI OG ÖRYGGI Í NÝJU AFGREIÐSLUKERFI Í SPARISJÓÐNUM

Nýtt afgreiðslukerfi var gangsett nú á mánudaginn í afgreiðslum Sparisjóðsins í Keflavík og Njarðvík. Að sögn Daða Þorgrímssonar, afgreiðslustjóra gekk mjög vel að skipta úr gamla kerfinu yfir í það nýja þó mikið væri að gera. Einhverjar gangtruflanir voru í kerfinu til að byrja með en velflestir viðskiptavinir tóku breytingunum mjög vel. „Við biðjumst velvirðingar á þeim töfum sem urðu en fullvissum fólk um að þegar fram líða stundir verður kerfið fljótvirkara en það gamla“, sagði Daði.Fyrsti viðskiptavinurinn sem afgreiddur var í nýja kerfinu fékk veski að gjöf.