Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Meira skíðafólk í sóttkví - hópur Suðurnesjamanna á að fara í sóttkví
Frá Saalbach í Austurríki. Þar var hópur frá Suðurnesjum sem kom heim laugardaginn 7. mars.
Mánudagur 9. mars 2020 kl. 14:17

Meira skíðafólk í sóttkví - hópur Suðurnesjamanna á að fara í sóttkví

Skíðasvæði í Ölpunum eru nú skilgreind áhættusvæði vegna veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómi. Þetta var ákveðið af sóttvarnalækni að viðhöfðu samráði við ríkislögreglustóra. Vitað er um hóp Suðurnesjamanna sem komu frá Munchen síðasta laugardag og voru á skíðum í Saalbach. Þeim ber núna að fara í sóttkví.

Umrædd svæði eru í fjórum löndum; Austurríki, Sviss, Þýskalandi og Frakklandi. Þessi svæði bætast við áðurnefnd áhættusvæði (Kína, Suður-Kórea, Íran og Norður-Ítalía auk Ischgl í Austurríki).

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nýju svæðin eru t.d. Val Thorens, Chamonix, Zermatt, St. Anton, Ischgl, Serfaus, Sölden, Garmisch, Hintertux, Kitzbuhel, Saalbach, Wagrein o.fl.

Landsvæðin eru eftirfarandi:

-   Austurríki:

o   Vorarlberg

o   Tirol

o   Salzburg

o   Kärnten

-   Sviss:

o   Valais

o   Bernese Oberland

o   Ticino

o   Graubünden

-   Þýskaland:

o   Skíðasvæði í Suður Bæjaralandi

-    Frakkland:

o   Provence-Alpes-Côte d'Azur

o   Auvergne-Rhône-Alpes

Íslendingar sem hafa dvalið á þessum svæðum frá 29. febrúar eiga að fara í 14 daga sóttkví frá því að þeir yfirgáfu viðkomandi svæði

Þeir sem hafa verið á þessum svæðum og finna til einkenna eru hvattir til að hafa samband við síma 1700, tilgreina að þeir hafi verið á hættusvæði og fá ráðgjöf um næstu skref. 

Vegna aukinna fjölda staðfestra tilvika COVID-19 hjá fólki hér á landi og erlendis sem hefur verið á skíðasvæðum í Ölpunum telur sóttvarnalæknir aukna áhættu á smiti á því svæði. Því er gripið til þess að skilgreina þessi svæði sem áhættusvæði.

Ljóst er að fjöldi Íslendinga er á þessum svæðum nú um stundir. Er þeir hvattir til að skrá sig i grunn borgaraþjónustunnar sem nálgast má á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.