Mánudagur 14. apríl 2008 kl. 10:17
Meint nauðgun rannsökuð
Lögreglan á Suðurnesjum er með til rannsóknar meinta nauðgun á veitingastaðunum Trix í Reykjanesbæ um helgina.
Þetta staðfesti Jóhannes Jensson hjá rannsóknardeild lögreglu í samtali við Víkurfréttir. Hann sagði að ekki hefði enn borist formleg kæra og að enginn væri í haldi lögreglu.