Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Fréttir

Megn kannabislykt, dóp og sterar
Laugardagur 19. mars 2016 kl. 11:00

Megn kannabislykt, dóp og sterar

Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði kannabisefni, meintar e – töflur og stera í húsleit sem gerð var í íbúðarhúsnæði í umdæminu í fyrradag. Megna kannabislykt lagði út úr íbúðinni þegar lögreglumenn bar að garði. Húsráðandi heimilaði leit og í húsnæðinu fundust ofangreind efni. Um var að ræða tugi af  e – töflum og steratöflum.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25