HSS
HSS

Fréttir

Megn amoníakslykt veldur íbúum óþægindum: Málið komið til Umhverfisstofnunar
Þriðjudagur 20. febrúar 2007 kl. 10:12

Megn amoníakslykt veldur íbúum óþægindum: Málið komið til Umhverfisstofnunar

„Það er ansi hart að vera búinn að koma sér upp húsi í einu dýrasta hverfi bæjarins og þurfa svo að búa við þetta.” segir Sigurður Guðjónsson íbúi í Steinási, en borið hefur á megnri ammoníakslykt í hverfinu í norðvestanáttum. Lyktin kemur frá pytti neðan af Fitjum en í hann er losaður úrgangur af álgjalli sem til fellur frá álendurvinnslu í Helguvík. Þegar úrgangurinn kemst í snertinu við sjó myndast gufur sem valda umræddri lyktarmengun. Heilbrigðisfulltrúi segir að unnið sé að því að koma  starfseminni í burtu frá núverandi stað.

Sigurður Guðjónsson segir að keyrt hafi um þverbak síðastliðið miðvikudagskvöld þegar amoníakslyktin lagðist yfir hverfið. Var hún þá svo megn, að sögn Sigurðar, að fólki var ekki vært útivið öðruvísi en að fá sviða í augu og óþægindi í öndunarfæri.
„Þetta er alveg ótækt, ekki eingöngu vegna lyktarinnar heldur er pytturinn alveg óvarinn og fólk hefur áhyggjur af öryggi barnanna í hverfinu sem er nánast ofan í þessu,“ segir Sigurður.

Magnús Guðjónsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, segir að mikill fjöldi kvartana hafi borist vegna umræddrar lyktarmengunar. Á sínum tíma hafi leyfi verið gefið fyrir starfseminni á þessum stað miðað við þáverandi aðstæður, sem ekki séu lengur fyrir hendi í ljósi þess að íbúabyggð sé nú risin í Grænásnum.
„Við erum að herja á Umhverfisstofnun sem veitir starfsleyfið. Við gerum þá kröfu að fyrirtækið verði látið hætta starfsemi á þessum stað. Við ræddum málið við Umhverfisstofnun núna fyrir helgi og mér skilst að þeir séu núna í viðræðum við forsvarsmenn fyrirtækisins,“ sagði Magnús.

Mynd: Pytturinn umræddi á Fitjum. Þaðan berst megn amoníaksfnykur sem veldur íbúum í nærliggjandi byggð óþægindum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn