Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Meðferðarúrræði fyrir tóbaksfíkla og nýjustu rannsóknir ræddar
Föstudagur 15. september 2006 kl. 10:58

Meðferðarúrræði fyrir tóbaksfíkla og nýjustu rannsóknir ræddar

Ráðstefnan Loft 2006 hófst í Kirkjulundi í Reykjanesbæ í gær. Ráðstefnan er fyrst og fremst fyrir heilbrigðisstarfsmenn og áhugafólk um tóbaksvarnir en þetta er í fjórða sinn sem slík ráðstefna er haldin hér á landi.

Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri heilsugæslu HSS, er í undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna. Hún segir að á hverri ráðstefnu sé aðaláherslan lögð á það sem sé efst á baugi hverju sinni og kynnt það nýjasta í meðferðarúrræðum  fyrir tóbaksfíkn.

 Reiknað er með að 90 manns sæki ráðstefnuna allsstaðar að af landinu. Flestir þátttakendur eru heilbrigðisstarfsmenn en Sigrún á einnig von á því að áhugafólk um tóbaksvarnir taki þátt í ráðstefnunni.

 Um uppbyggingu ráðstefnunnar sagði Sigrún að henni væri skipt í fjóra hluta. Í fyrsta hluta verður fjallað um klínískar tóbaksvarnir. Í öðrum hlutanum verða flutt erindi um reykleysismeðferð á Íslandi og í þeim þriðja er fjallað um óbeinar reykingar. Þá verður að lokum fjallað um reyklausa vinnustaði.

Sigrún sagði tilganginn með ráðstefnunni m.a. vera að vekja fólk til umhugsunar um tóbaksvarnir og skaðsemi reykinga. Þá er einnig markmiðið að fá heilbrigðisstarfsfólk til að stilla saman strengi sína og vinna í sameiginlegu átaki, því heilsugæslan á lögum samkvæmt að sinna tóbaksforvörnum.

Mörg áhugaverð erindi verða í boði á ráðstefnunni í Kirkjulundi. „Eitt af því sem ég tel líklegt til að vekja athygli eru lög um breytingar á lögum um tóbaksvarnir. Lögin varða reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram. Lögin voru samþykkt 2. júní í sumar og koma til framkvæmda 1. júní 2007,“ segir Sigrún og furðar sig á því að umræðan um þessi lög hafi ekki verið meiri í þjóðfélaginu og á allt eins von á því að viðbrögðin verði þeim mun harðari nokkrum dögum áður en kemur til gildistöku þeirra.

Tveir erlendir fyrirlesarar verða á ráðstefnunni og munu koma inn á þennan þátt. Karl E. Lund kemur frá Noregi og mun segja frá áhrifum reykbanns þar í landi og sennilega einnig frá nýútkominni skýrslu þar sem hann tekur saman áhrif bannsins á veitingastaðina og viðhorf til lagasetningar, hlýðni við lögin og fleira. Annar fyrirlesari, Göran Pershagen, kemur frá Svíþjóð en hann er mikill sérfræðingur í áhrifum óbeinna reykinga á heilsu fólks.

Til að fjalla enn betur um íslensku lögin kemur Sólveig Guðmundsdóttir lögfræðingur frá heilbrigðisráðuneytinu og mun ræða um hver verði næstu skref fram að innleiðingu þeirra. Þá mun Erna Hauksdóttir, fulltrúi veitingamanna, verða með erindi og verður án efa fróðlegt að heyra afstöðu veitingamanna til nýju laganna.

Á seinni degi ráðstefnunnar, í dag, á eflaust eftir að vekja athygli erindi Jakobínu Árnadóttur um breytingar á afstöðu og hegðun íslenskra smábarnaforeldra. Þar kynnir hún nýja rannsókn á reykingum í umhverfi þriggja ára barna.

„Í rannsókninni er borið saman viðhorf, þekking og reykingar í umhverfi þriggja ára barna árið 1955 og núna árið 2006“. Segir Sigrún að fram komi töluverðar breytingar á þessu tímabili og fróðlegt verði að sjá niðurstöður rannsóknarinnar.

En hvernig er tekið á tóbaksvörnum á meðal heilbrigðisstarfsmanna?

„Fyrir ráðstefnuna var gerð óformleg könnun á því hvað væri verið að gera í tóbaksvörnum almennt á heilsugæslum í landinu. Það kom í ljós að þessi málaflokkur er alls ekki ofarlega á vinsældalistanum hjá heilbrigðisstarfsfólki. Markviss vinna er einnig lítil í þessari mikilvægu forvörn og þarf virkilega að verða breyting þar á,“ segir Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSS í samtali við Víkurfréttir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024