Bygg
Bygg

Fréttir

Meðeigendur Voga höfnuðu kauptilboði í iðnaðarlóð
Laugardagur 26. mars 2016 kl. 14:00

Meðeigendur Voga höfnuðu kauptilboði í iðnaðarlóð

Kauptilboði Sveitarfélagsins Voga á hluta deiliskipulagðs lands á iðnaðarsvæði við Vogabraut var hafnað af fulltrúa annarra landeigenda en sveitarfélagsins. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs Voga á dögunum.

Lögmaður sveitarfélagsins fór á fundinum yfir þá valkosti sem hann telur vera í stöðunni varðandi næstu skref málsins. Eins og fram hefur komið hefur fyrirtækið Ísaga ehf. lýst áhuga á því að reisa súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut.

Í október sl. var svo bæjarstjóra Voga falið að óska eftir viðræðum við meðeigendur Sveitarfélagsins Voga að landsvæði við Hraunholt í Vogum um kaup á landinu. Kauptilboðinu hefur nú verið hafnað.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn