Með sveðju og fíkniefni
Lögreglan á Suðurnesjum gerði húsleit í íbúðarhúsnæði í umdæminu um helgina, að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Við leitina fannst meint amfetamín í frysti, meint kannabis og amfetamín í örbylgjuofni og hvítt duft í boxi á eldhúsborði. Á háalofti fannst sveðja. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum við málið.
Játaði hann aðild sína hvað varðaði fíkniefnin sem fundust en neitaði að eiga sveðjuna. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005 þar sem hægt er að koma gjaldfrjálst á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál undir nafnleynd.