Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Með stera, kannabis og sveppi
Þriðjudagur 10. mars 2015 kl. 11:00

Með stera, kannabis og sveppi

- og óþekkt hvítt efni.

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af nokkrum einstaklingum vegna fíkniefnabrota á undanförnum dögum. Einn þeirra var stöðvaður vegna þess að hann ók of hratt. Hann var grunaður um fíkniefnaakstur og framvísaði að auki sterum í poka.  Annar ökumaður, sem varð uppvís að fíkniefnaakstri var með kannabisefni í bifreið sinni. Tveir ökumenn til viðbótar höfðu neytt fíkniefna að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu.

Þá fundust kannabisefni og sveppir, auk óþekkts hvíts efnis í tveimur ílátum í húsnæði í umdæminu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Loks kom dyravörður á skemmtistað í umdæminu á lögreglustöð með tvo kannabispoka sem fundist höfðu á karlasalerni á viðkomandi skemmtistað.