Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Með sprautunálar og amfetamín í nærbuxunum
Mánudagur 15. febrúar 2016 kl. 10:56

Með sprautunálar og amfetamín í nærbuxunum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt nokkuð af fíkniefnum á undanförnum dögum. Í bifreið sem lögreglumenn stöðvuðu voru fimm einstaklingar sem allir voru í annarlegu ástandi. Ökumaðurinn reyndist hafa neytt amfetamíns og var einnig sviptur ökuréttindum. Farþegi var með hníf í buxnastreng og sprautunálar og amfetamín í umbúðum í nærbuxum. Annar farþegi var einnig með amfetamín innan klæða. Hinn þriðji var með slatta af töflum í fórum sínum sem hann gat ekki gert grein fyrir. Að auki fundust nokkrir amfetamínpokar í bifreiðinni. Í kjölfarið var gerð húsleit hjá einum farþeganna og fundust sterar á heimili hans.

Í tilkynningu frá lögreglunni er minnt á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024