HSS
HSS

Fréttir

Með SOUL í auga
Sunnudagur 27. ágúst 2017 kl. 06:00

Með SOUL í auga

- Tónleikaröðin með blik í auga heldur áfram

Tónleikaröðin „Með blik í auga“ heldur áfram á Ljósanótt og í þetta sinn verður SOUL tónlist fremst í flokki. Arnór Vilbergsson og Guðbrandur Einarsson sögðu okkur aðeins frá sýningunni og undirbúningi hennar.

„Okkur langaði til þess að búa til gleðisýningu í ár og soul-tónlist er vel til þess fallin að bjóða upp á gleði og glens og ótrúlega skemmtilega tónlist en þetta er sjöunda árið sem við höldum tónleika í þessari tónleikaröð.“
Hvernig lög verða í sýningunni?
„Við höfum alltaf unnið með söguna í gegnum lögin. Í ár byrjum við til dæmis á lögum frá Ray Charles, færum okkur yfir í Aretha Franklin, Marvin Gaye og munum síðan enda með góðum smell, hver veit hvort við lumum ekki á rappi í lokin. Þetta er mikil lagaflóra, gleði og rosalega skemmtileg tónlist.“
Guðbrandur segir að soul-tónlistin hafi í raun og veru byrjað í kirkjunni en þar á hún sinn uppruna í gospelinu.
„Flytjendur í ár eru heimamenn ásamt nokkrum stórstjörnum á borð við Jón Jónsson sem er með frábært soul raddsvið, Stefanía Svavarsdóttir og Jóhanna Guðrún koma einnig fram, en þær hafa sungið með okkur áður. Eyþór Ingi sem er frábær söngvari og svo er það enginn annar en stuðboltinn og reynsluboltinn sjálfur Helgi Björns.“ Arnór segir þó að hinir flytjendurnir séu stútfullir af reynslu eins og Helgi en hann sé bara eins og gamalt rauðvín, verði bara betri með hverju árinu.
Þið hafið komið víða við á síðastliðnum árum. Er ekkert mál að vera með nýtt efni nýjar hugmyndir?
„Í kringum áramótin er púlsinn tekinn og þá er ákveðið hvort við ætlum að gera þetta einu sinni enn eða hætta þessu. Það hefur gengið vel undanfarin ár en til að byrja með fórum við yfir íslenska tónlist og tímabilin hennar. Eftir það fórum við síðan að færa okkur yfir í þema. Í fyrra vorum við með kántrý tónlist og það hafði enginn sérstaka trú á henni þegar ég skaut því að en sú sýning heppnaðist afar vel,“ segir Guðbrandur.
Arnór er hljómsveitarstjórinn og hefur í nægu að snúast fyrir sýninguna og heldur utan um stóran hóp af tónlistarfólki. Við spurðum hann hvernig gengi að halda utan um þetta allt saman.
„Þetta er mjög auðvelt í raun og veru. Það sem er svo gott við þetta er hversu sjóaðir allir eru orðnir í þessu. Í ár erum við til dæmis með sömu menn í hljómsveitinni og hafa spilað með okkur síðastliðin fjögur ár. Við erum í raun og veru að æfa í litlum hópum, bandið æfir sér, blásturshljóðfæraleikarar sér og síðan einn og einn söngvari. Á mánudeginum fyrir sýningu hittumst við öll í Andrews leikhúsinu og æfum saman.“
Langur tími fer í undirbúning á svona sýningu og hálfu ári fyrir hana er byrjað að útsetja, senda út plön, fá raddir og margt fleira. Guðbrandur segir að fyrsti listinn sem hann setti saman á Spotify hafi innihaldið 200 lög en síðan var grisjað smám saman úr honum og að lokum urðu 20 lög fyrir valinu. Guðbrandur nefnir í gríni að hann hafi reynsluna umfram Arnór í þessari tónlist, því hann sé gamall reynslubolti og hlær síðan.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sýningin er frumsýnd þann 30. ágúst og eru örfáir miðar eftir á þá sýningu. Tvennir tónleikar vera svo 3. september klukkan 16 og 20. Miðasala er á midi.is