HSS
HSS

Fréttir

Með lögguna á hælunum undir rúm
Mánudagur 17. mars 2014 kl. 14:16

Með lögguna á hælunum undir rúm

Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum hugðist hafa afskipti af í vikunni, vegna gruns um fíkniefnaakstur, jók þá hraðann og ók um götur Keflavíkur. Hann stöðvaði bifreiðina ekki fyrr en heima hjá sér, þar sem hann vatt sér út úr henni og skaust inn. Þar fundu lögreglumenn hann undir rúmi.

Lögregla hafði borið kennsl á hann sem ökumann bifreiðarinnar, enda hefur hann komið við sögu áður sökum fíkniefnabrota.

Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu að hann hafði neytt áfengis og amfetamíns.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn