Föstudagur 17. mars 2006 kl. 09:14
Með lögguna á hælunum
Við eftirlit í Sandgerði í gærkvöld hugðist lögregla stöðva ökumann fjórhjóls. Skipti þá engum togum að hann reyndi að komast undan, ók greitt um götur með lögregluna á hælunum. Ökumaður fjórhjólsins náðist þó skömmu síðar. Var fjórhjólið ljóslaust og óskráð.