Þriðjudagur 25. febrúar 2020 kl. 09:14
Með kókaín og kannabisfræ
Nokkrir ökumenn voru teknir úr umferð um helgina í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum vegna gruns um fíkniefnaakstur. Í bifreið eins þeirra fundust kannabisfræ í tösku og farþegi í bílnum var með kókaín í úlpuvasa sínum.
Annar ökumaður, grunaður um fíkniefnaakstur, ók jafnframt sviptur ökuréttindum.