Fimmtudagur 5. febrúar 2009 kl. 17:47
Með kókaín frá Kaupmannahöfn
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði Íslending á þrítugsaldri sl. mánudag sem var að koma frá Kaupmannahöfn. Í farangri hans fannst nokkurt magn kókaíns. Aðilinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13. febrúar 2009. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.