Með kíló af kókaíni innvortis

Ungverjinn gleypti efnin, sem pakkað hafði verið í rúmlega áttatíu hylki, á Kanaríeyjum þar sem hann er búsettur. Frá Kanaríeyjum flaug maðurinn til Madridar, þaðan til Parísar og loks til Íslands. Á ferð sinni tókst honum ekki að halda fíkniefnapakkningunum innvortis og skilaði um þriðja hluta efnanna út úr líkamanum á leiðinni. Hann lét það hins vegar ekki á sig fá heldur skolaði af hylkjunum og gleypti aftur. Í Leifsstöð vaknaði grunur tollvarða um að maðurinn hefði fíkniefni í fórum sínum og var hann sendur í röntgenskoðun þar grunur tollvarðanna var staðfestur. Meltingavegur Ungverjans var stútfullur af fíkniefnum. Á gamlárskvöld hafði Ungverjinn náð að skila öllum pakkningunum úr líkamanum. Hann var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald.
Fíkniefnapakkningarnar reyndust vera ótraustar þegar þær byrjuðu að skila sér og vöknuðu áhyggjur meðal lögreglumanna um að þær myndu bresta. Rannsókn málsins beinist meðal annars að því hverjir voru væntanlegir kaupendur kókínsins hér á landi.
Nígeríumaðurinn kom til Íslands á miðvikudaginn fyrir tæpri viku síðan og var hann handtekinn daginn eftir og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á föstudag. Frá þessu greinir í Fréttablaðinu í dag.