Með kannabis í skúrnum
Tveir pokar með kannabisefnum og tóbaksblandað kannabis fundust í skúr í Reykjanesbæ, þegar lögreglan á Suðurnesjum leit þar nýverið við. Einn karlmaður, rúmlega tvítugur að aldri, var í skúrnum og þegar hann opnaði lagði megna kannabislykt í gegnum gættina. Hann var spurður hvort hann væri með fíkniefni og framvísaði hann þá kannabispokunum og einum kannabisblönduðum tóbaksvafningi.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann