Með kannabis í Flugstöðinni
Karlmaður á þrítugsaldri var á dögunum stöðvaður við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, grunaður um vörslur fíkniefna. Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af manninum, sem var Íslendingur að koma frá Danmörku til landsins. Hann reyndist vera með lítilræði af kannabis á sér.