Með kannabis, lyf og stera í bílnum
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld ökumann vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Megn kannabislykt barst úr bifreiðinni þegar lögreglumenn ræddu við manninn og viðurkenndi hann neyslu kannabisefna.
Hann heimilaði leit í bifreið sinni og þar fundust meint kannabisefni, meintir sterar og lyf sem maðurinn gat ekki gert grein fyrir. Við leit á heimili hans, að fenginni heimild, fundust einnig meintir sterar.