Með hnúajárn og amfetamín
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrrakvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist hafa í fórum sínum hnúajárn og poka sem innihélt meint amfetamín. Auk þess hafði hann aldrei öðlast ökuréttindi.
Farþegi sem var með honum í bílnum var með talsvert magn af kannabisefnum og tvær e - töflur í farangri sínum. Hann var einnig færður á lögreglustöð.
Áður höfðu tveir ökumenn verið handteknir vegna gruns um ölvunarakstur. Annar þeirra ók út af þar sem hann var á leið um Reykjanesbraut og hinn hafði verið sviptur ökuréttindum tvisvar.