Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 13. maí 2002 kl. 19:55

Með hassið í Macintosh-dós

Maður var gripinn á Keflavíkurflugvelli á sunnudag þar sem hann reyndi að smygla 600 grömmum af hassi til landsins. Búið hafði verið um efnið í dollu sem annars hefði haft að geyma Macintosh-konfekt. Að sögn lögregluyfirvalda á Keflavíkurflugvelli var plast utan um dolluna eins og hún hefði aldrei verið opnuð. Farangur mannsins, sem var að koma með flugi frá Amsterdam, var skoðaður í kjölfar áhuga fíkniefnaleitarhunds tollvarða á manninum. Áætlað söluverðmæti efnisins nemur rúmum 1,5 milljónum króna. Málið er í höndum fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík.

Visir.is greindi frá nú undir kvöld.
Bílakjarninn
Bílakjarninn