Fimmtudagur 19. júlí 2001 kl. 10:49
Með hass í skónum
Maður um tvítugt var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á sunnudagskvöld, en hann var með 80 grömm af hassi í öðrum skónum. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði manninn við tollskoðun í Leifsstöð. Málið telst upplýst.