Bygg
Bygg

Fréttir

Með hálft kíló af kókaíni innvortis
Föstudagur 8. nóvember 2013 kl. 17:30

Með hálft kíló af kókaíni innvortis

Ung kona situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á tilraun hennar til stórfells smygls á fíkniefnum til landsins. Konan sem er nítján ára, spænskur ríkisborgari, kom með flugi frá Alicante á Spáni. Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu för hennar vegna gruns um að hún væri með fíkniefni meðferðis og gerðu lögreglu viðvart. Sá grunur reyndist á rökum reistur, því konan, sem hafði lagt af stað með farm fíkniefna innvortis hafði misst hluta af honum niður í nærklæðin á leiðinni. Reyndust það vera rúmlega 100 grömm af kókaíni. Auk þessa var hún enn með stóra pakkningu innvortist og fluttu lögreglumenn hana á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til að losa hana við pakkann. Það reyndist ekki gerlegt og var hún þá flutt með sjúkrabifreið undir læknishendur á Landspítalann, þar sem tókst að losa pakkann. Í honum voru rúmlega 300 grömm af kókaíni til viðbótar. Hún hafði því lagt upp með nær 500 grömm af kókaíni innvortis til Íslands.
Íslenskur karlmaður hefur verið yfirheyrður vegna rannsóknar málsins, en enginn handtekinn. Ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn