Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Með hálft kg af kókaíni í Leifsstöð
Laugardagur 28. janúar 2006 kl. 21:01

Með hálft kg af kókaíni í Leifsstöð

Þrír átján ára piltar voru teknir með hálft kíló af kókaíni í Leifsstöð á fimmtudag og voru úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald á föstudag að kröfu sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, sem rannsakar málið. Morgunblaðið segir frá þessu í dag. Þetta er með stærstu kókaínmálum sem upp hafa komið í Leifsstöð á liðnum árum og vekur athygli í ljósi svo ungs aldurs smyglaranna með annað eins magn fíkniefna á sér.

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði piltana við komuna til landsins og kom þá í ljós að þeir höfðu falið efnin innanklæða. Hreinleiki kókaínsins hefur ekki verið mældur en ætla má að götuverðmæti þess geti numið allt að 20 milljónum króna.

Piltarnir, sem allir eru íslenskir, eiga nokkurn sakaferil að baki. Málið telst með stærstu kókaínmálum sem upp hafa komið í Leifsstöð.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024