Bygg
Bygg

Fréttir

Með fíkniefni undir stýri
Mánudagur 12. desember 2016 kl. 12:56

Með fíkniefni undir stýri

Lögreglan á Suðurnesjum handtók fyrir og um helgina fjóra ökumenn vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Einn þeirra var réttindalaus og annar framvísaði fíkniefnum sem hann hafði í vörslum sínum.

Í þriðja tilvikinu reyndist farþegi vera með fíkniefni í vörslum sínum og framvísaði hann þeim. Ökumennirnir voru allir færðir á lögreglustöð þar sem sýnatökur fóru fram og teknar voru skýrslur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn