Með fíkniefni og fjarðurhníf
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af tveimur ungum mönnum sem báðir reyndust vera með fíkniefni í vörslum sínum. Annar þeirra var með kannabisefni og fjaðurhníf og gerðist því jafnframt brotlegur gegn vopnalögum. Hinn framvísaði kannabisefnum í þremur litlum pokum.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.