Með ársgamalt barn á fjórhjóli
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur viðurkenndi neyslu. Þá ók hann sviptur ökuréttindum og var með í fórum sínum þrjá poka, tvo með meintu amfetamíni og einn sem innihélt viagra.
Þá voru í vikunni höfð afskipti af karlmanni sem var í akstri á fjórhjóli með ársgamalt barn sitt meðferðis á hjólinu. Honum var tjáð að þessi háttsemi væri alls ekki í lagi og jafnframt að hann þyrfti alltaf að vera með hjálm þegar hann væri á þessu farartæki sem hann hafði ekki verið í þessu tilviki.